Allsherjarhús réttvísinnar
Riḍván 2012
Til bahá’ía um allan heim
Heittelskuðu vinir
Fyrir eitt hundrað árum, síðdegis á ellefta degi Riḍván-hátíðarinnar stóð ‘Abdu’l‑Bahá frammi fyrir áhorfendaskara sem taldi nokkur hundruð manns. Hann hóf upp exi og hjó með henni í grassvörðinn sem þakti musterislandið við Grosse Pointe, norður af Chicago. Þeir sem boðið var að vera viðstaddir þennan vordag þegar ‘Abdu’l‑Bahá tók þessa táknrænu skóflustungu, voru af ýmsum bakgrunni – norskir, indverskir, franskir, japanskir, persneskir, amerískir frumbyggjar, svo fáeinir séu nefndir. Það var því líkast að hið óbyggða musteri væri að uppfylla óskir Meistarans fyrir allar slíkar byggingar í framtíðinni en kvöldið fyrir athöfnina lét hann þær óskir í ljós „að mannkynið megi finna sér fundarstað“ og „að yfirlýsing um einingu mannkyns megi berast frá opnum forgörðum heilagleika [musterisins].“
Þeir sem á hann hlustuðu við þetta tækifæri og allir sem á hann hlýddu á ferðum hans til Egyptalands og Vesturlanda gátu ekki gert sér neina raunverulega grein fyrir þeim yfirgripsmiklu vísbendingum sem orð hans fólu í sér fyrir samfélög þjóðanna, gildismat þeirra og annir. Getur nokkur haldið því fram, jafnvel á þessari stundu, að hann hafi eitthvað annað en fjarlæga og óljósa sýn á það heimssamfélag framtíðarinnar sem opinberun Bahá’u’lláh er ætlað skapa? Enginn skyldi halda að siðmenningin sem hinar guðdómlegu kenningar knýja mannkynið til að móta verði að veruleika með einni saman aðlögun að því skipulagi sem nú er við lýði. Því fer fjarri. Í ávarpi sem ‘Abdu’l‑Bahá hélt nokkrum dögum eftir að hann lagði hornsteininn að móðurmusteri Vesturlanda sagði hann: „...meðal þess sem opinberun andlegra afla mun leiða af sér er að heimur mannsins lagar sig að nýju skipulagi,“ og að „réttlæti Guðs mun opinberast í öllum mannlegum málefnum.“ Þessi og fjölmörg önnur ummæli Meistarans sem bahá’í samfélagið beinir sjónum sínum aftur og aftur að á þessu aldarafmæli auka vitund okkar um hversu langt heimurinn á í land, eins og honum er nú háttað, til að sú feiknlega sýn sem Faðir hans gaf honum verði að veruleika.
Því er verr, að þrátt fyrir lofsverða viðleitni velmeinandi einstaklinga í öllum löndum sem vinna að þjóðfélagsumbótum, virðist mörgum sem hindranirnar á þeirri leið séu óyfirstíganlegar. Vonir þeirra stranda á röngum ályktunum um mannlegt eðli – ályktunum sem gegnsýra svo hefðir og lífshætti mikils hluta nútímasamfélags að á þær er litið sem góðar og gildar staðreyndir. Þessar ályktanir taka ekki mið af því mikla forðabúri andlegra möguleika sem er aðgengilegt sérhverri upplýstri sál sem vill nýta sér það; í staðinn er treyst á réttlætingu mannlegra bresta og veikleika en dæmin um slíkt auka daglega almenna örvæntingu. Lagskiptur hjúpur af fölskum forsendum hylur þannig þau grundvallarsannindi að ástand heimsins endurspeglar skrumskælingu mannsandans, ekki innra eðli hans. Markmið sérhvers opinberanda Guðs er að koma til leiðar umbreytingu á innri og ytri aðstæðum mannkynsins. Og þessi umbreyting gerist með eðlilegum hætti þegar vaxandi hópur fólks, sameinaður af guðlegum lífsreglum, reynir sameiginlega að þróa andlega hæfni sína til að stuðla að samfélagslegum breytingum. Það var grýttur jarðvegur sem Meistarinn hjó öxinni í fyrir einni öld og á sama hátt geta ríkjandi kenningar nútímans í fyrstu virst ómóttækilegar fyrir breytingum, en þær munu án efa dofna og hverfa smám saman, og „blóm sanns skilnings“ vökvuð „vorskúrum hylli Guðs“ spretta fersk úr þeim jarðvegi.
Við færum Guði þakkir fyrir að í krafti orða Hans eruð þið – samfélag Hins mesta nafns – að rækta umhverfi þar sem sannur skilningur getur blómgast. Jafnvel þau sem þola fangelsun fyrir trúna eru með ómældum fórnum sínum og staðfestu að gera „liljum þekkingar og visku“ kleift að vaxa og blómgast í samúðarfullum hjörtum. Um allan heim eru sálir fullar eldmóðs uppteknar af starfi sínu við að byggja upp nýjan heim með því að beita fyrirmælum fimm ára áætlunarinnar á kerfisbundinn hátt. Svo djúpur skilningur hefur fengist á sérhverjum þætti hennar að við teljum enga þörf á því að gera þeim meiri skil hér. Við biðjum við fótskör algjöfullar forsjónar fyrir því að herskararnir á hæðum aðstoði sérhvert ykkar í starfinu við framþróun áætlunarinnar. Það er einlæg ósk okkar, sem verður enn innilegri eftir að hafa séð vitnisburðinn um helgaða starfsemi ykkar á liðnu ári, að þið munið stöðugt eflast þegar þið beitið af öryggi þeirri þekkingu sem reynslan færir ykkur. Nú er ekki tími til að staldra við; of margir gera sér ekki grein fyrir að nýr dagur er runninn. Hver önnur en þið getið flutt hinn guðlega boðskap? „Ég sver við Guð,“ segir Bahá’u’lláh með vísan til málstaðar síns, „þetta er vettvangur innsæis og aðskilnaðar, sýnar og uppörvunar, þar sem engir geta hleypt fákum sínum nema hugrakkir riddarar Hins miskunnsama, sem hafa slitið af sér öll bönd við heim verundar.“
Að sjá bahá’í heiminn að verki jafngildir í sannleika því að skyggnast yfir bjart sjónarsvið. Í lífi hins einstaka átrúanda sem þráir framar öllu að bjóða öðrum til samneytis við Skaparann og veita mannkyni þjónustu má finna tákn andlegrar umbreytingar sem Drottinn allsherjar ætlar sérhverri sál. Þann anda þjónustu við almannaheill sem einkennir starfsemi sérhvers bahá’í samfélags sem helgar sig aukinni hæfni allra meðlima sinna, ungra og aldinna, auk vina sinna og samstarfsmanna, má skoða sem vísbendingu um hvernig mannlegt samfélag sem byggt er upp á grundvelli guðlegra kenninga getur þróast. Og í umdæmum sem lengra eru komin þar sem starfsemin innan ramma áætlunarinnar er mikil og kröfurnar um að tryggja samhengi milli hinna ýmsu sviða starfsins eru mest knýjandi, má sjá bjarma fyrir mynstri í þróun stjórnarfars, hversu dauft sem það kann að virðast, sem sýnir hvernig stofnanir trúarinnar munu stig af stigi takast á herðar þá ábyrgð sína að stuðla að mannlegri velferð og framþróun. Það er því ljóst að þróun einstaklingsins, samfélagsins og stofnananna felur í sér mikil og máttug fyrirheit. En auk þess fyllumst við sérstakri gleði þegar við sjáum hvernig tengslin milli þessara þriggja aðila einkennast af blíðri ástúð og gagnkvæmum stuðningi.
Mótsögnina við þetta má sjá í sundrungunni sem einkennir tengslin milli samsvarandi þriggja aðila í heiminum almennt – borgaranna, þjóðfélagsins og stofnana þess – og endurspeglar ólguna á þessu breytingaskeiði mannkynsins. Mennirnir eru ófúsir til þess að starfa saman sem ein lífræn heild og eru fastir í valdabaráttu sem að endingu reynist fánýt og kemur engu til leiðar. Hversu frábrugðið þessu er ekki þjóðfélagið sem ‘Abdu’l‑Bahá lýsir í fjölmörgum töflum og ávörpum – þar sem dagleg samskipti einstaklinganna og tengslin milli þjóðríkjanna mótast af vitundinni um einingu mannkyns. Tengsl sem mótast af þessari vitund eru ræktuð af bahá’íum og vinum þeirra í byggðum og hverfum borga um allan heim; frá þeim berst hreinn og ómengaður ilmur gagnkvæmni og samvinnu, samstillingar og ástar. Í þessari látlausu umgjörð birtist nú sýnilegur valkostur við hin kunnuglegu deiluefni þjóðfélagsins. Þannig verður það ljóst að einstaklingur sem vill tjá sig á ábyrgan hátt tekur með íhygli og alvöru þátt í samráði sem er helgað almannaheill og stenst þá freistingu að hamra á persónulegri skoðun sinni; bahá’í stofnun, sem metur að verðleikum þörfina fyrir samræmdar aðgerðir sem beinast að árangursríkum markmiðum, hefur ekki þann tilgang að stjórna heldur að næra og uppörva; samfélag sem á að stjórna sinni eigin þróun sér ómetanlega kosti í einingu sem skapast með heilshugar þátttöku í áætlunum stofnananna. Með áhrifum frá opinberun Bahá’u’lláh myndast ný hlýja og innileiki, nýtt líf, í samskiptum þessara þriggja aðila; þeir eru sameiginlega sú deigla þar sem andleg heimssiðmenning, sem ber merki guðlegs innblásturs, mótast smám saman.
Ljósi opinberunarinnar er fyrirhugað að lýsa upp öll verksvið; á þeim öllum verður að endurmóta tengslin sem viðhalda mannlegu samfélagi; á þeim öllum leitar heimurinn að dæmum um hvernig mennirnir eiga að haga sér hver gagnvart öðrum. Ykkur til umhugsunar nefnum við efnahagslíf heimsins vegna þess hve augljósan þátt það á í illdeilunum sem svo margir hafa flækst í að undanförnu, þar sem óréttlæti er látið viðgangast með tómlæti og afskiptaleysi og litið er á rangláta skiptingu hagnaðar sem tákn um árangur. Svo rótgróin eru þessi háskalegu viðhorf að erfitt er að ímynda sér hvernig einstaklingur gæti einn síns liðs breytt ríkjandi viðhorfum sem móta samskiptin á þessu sviði. Engu að síður munu bahá’íar forðast ákveðið framferði, eins og óheiðarleika í viðskiptum eða fjárhagslega misnotkun annarra. Tryggð og fastheldni við guðlegar áminningar krefjast þess að engin mótsögn sé í efnahagslegu framferði bahá’ía og trú þeirra. Með því að beita í lífi sínu þeim meginreglum trúarinnar sem lúta að sanngirni og jöfnuði getur ein sál haldið á lofti mælikvarða sem er langt ofar þeim lága þröskuldi sem heimurinn miðar við. Mannkynið mæðist vegna skorts á lífsmynstri sem keppa skal að; við bindum vonir við að þið munið fóstra samfélög sem færi veröldinni von með breytni sinni.
Í Riḍvánboðum okkar 2001 gáfum við til kynna að í löndum þar sem hópinngönguferlið er nógu vel á veg komið og aðstæður þjóðarsamfélaganna hagstæðar, myndum við samþykkja stofnun þjóðarmustera. Við sögðum jafnframt að tilkoma þeirra yrði þáttur í fimmta tímaskeiði mótunaraldar trúarinnar. Það er okkur mikið gleðiefni að tilkynna að þjóðarmusteri verða reist í tveimur löndum: Lýðveldinu Kongó og Papúa Nýju Gíneu. Í þessum löndum hafa þau skilyrði sem við settum verið sannanlega uppfyllt og viðbrögð þessara þjóða við möguleikunum sem núverandi áætlanir hafa skapað eru verulega eftirtektarverð. Bygging síðasta álfumusterisins í Santiago er vel á veg komin og bygging þjóðarmustera eru enn eitt þakkarvert dæmi um hvernig trú Guðs hefur náð að festa rætur í jarðvegi mannlegs samfélags.
Eitt skref til viðbótar er mögulegt. Musterið, Mashriqu’1-Adhkár, sem ‘Abdu’l‑Bahá lýsir sem „einni af mikilvægustu stofnunum heimsins“ tengir saman tvo nauðsynlega og óaðskiljanlega þætti bahá’í lífs; tilbeiðslu og þjónustu. Sameining þeirra endurspeglast einnig í samhenginu milli þeirra þátta áætlunarinnar sem miða að samfélagsuppbyggingu, sérstaklega eflingu þess tilbeiðsluanda sem finnur sér farveg á bænafundum og í menntaferli sem byggir upp hæfni til að þjóna mannkyni. Gagnkvæmt samband tilbeiðslu og þjónustu er sérstaklega áberandi í umdæmum vítt um heiminn þar sem bahá’í samfélög hafa náð að vaxa mjög og eflast og þar sem þátttaka í félagslegu starfi er augljós. Sum þessara umdæma hafa verið útnefnd sem lærdómssetur til að rækta hæfni vinanna til að þróa unglingaverkefnið á tengdum svæðum. Eins og við höfum nýlega bent á styrkir hæfnin til að viðhalda þessu verkefni einnig þróun námshringja og barnakennslu. Auk þess að gegna meginhlutverki sínu styrkir lærdómssetrið öll áform um útbreiðslu og treystingu. Það er í þessum umdæmum sem hægt verður á komandi árum að huga að byggingu svæðismustera. Hjörtu okkar fyllast þakklæti við Hina öldnu fegurð þegar við með fögnuði tilkynnum ykkur að við höfum hafið samráð við viðkomandi andleg þjóðarráð varðandi byggingu fyrstu svæðismusteranna í eftirfarandi umdæmum: Battambang í Kambódíu; Bihar Sharif á Indlandi; Matunda Soy í Keníu; Norte del Cauca í Kólumbíu og Tanna í Vanúatú.
Til að styrkja byggingu tveggja þjóðar- og fimm svæðismustera höfum við ákveðið að setja á fót musterasjóð við bahá’í heimsmiðstöðina til gagns fyrir öll slík verkefni. Vinunum hvarvetna er boðið að gefa í þann sjóð í fórnaranda eins og aðstæður þeirra leyfa.
Elskuðu samstarfsmenn og konur: Sverðinum sem hendur ‘Abdu’l‑Bahá sundraði fyrir hundrað árum verður nú aftur sundrað í sjö öðrum löndum og það er aðeins undanfari þess dags þegar í sérhverri borg og byggð verður reist bygging þar sem Guð er tilbeðinn í samræmi við fyrirmæli Bahá’u’lláh. Frá þessum dögunarstöðum minningar um Guð munu geislar frá ljósi Hans berast og söngvar lofgjörðar Hans hljóma.
[undirritað: Allsherjarhús réttvísinnar]