Allsherjarhús réttvísinnar
17. janúar 2003
Til bahá’ía um allan heim
Heittelskuðu vinir
Við höfum, einlæglega þakklátir Bahá’u’lláh, fylgst með því hvernig fimm ára áætlunin hefur þróast undanfarin tvö ár eftir skilaboð okkar til ráðstefnu álfuráðanna 9. janúar 2001. Það er að sönnu uppörvandi að verða vitni að þeirri lærdómsmenningu sem hvarvetna skýtur rótum þegar bahá’í heimssamfélagið einbeitir sér að eflingu hópinngönguferlisins. Á þessum tímamótum þegar sameiginleg reynsla samfélagsins hefur tekið svo þýðingarmikið skref fram á við teljum við tímabært að aðgæta vel þá innsýn sem fengist hefur og varpa ljósi á þau málefni sem upp hafa komið.
Á fyrstu mánuðum áætlunarinnar byrjuðu andlegu þjóðarráðin með tiltölulega lítilli fyrirhöfn að skipta lögsögu sinni í landsvæði sem kölluð eru umdæmi. Þau notuðu til þess landfræðilega og félagslega mælikvarða en tóku ekki mið af styrk bahá’í svæðissamfélaga. Samkvæmt þeim upplýsingum sem borist hafa til heimsmiðstöðvarinnar eru nú tæplega 17.000 umdæmi um allan heim, að undanskildum þeim löndum þar sem hömlur eru lagðar á starfsemi trúarinnar af einhverjum ástæðum. Fjöldi umdæma í hverju landi er mjög breytilegur – allt frá einu í Singapore, sem skoða verður sem eitt umdæmi, til 1.580 umdæma á Indlandi. Sum þessara svæða eru strjálbýl með nokkur þúsund íbúum, önnur ná til nokkurra milljóna. Borgarsvæði undir lögsögu eins svæðisráðs hafa yfirleitt verið gerð að einu umdæmi, en þeim er síðan skipt í geira til að auðvelda skipulagningu og framkvæmd.
Þegar hinum ýmsu löndum og landsvæðum hafði verið skipt í viðráðanleg svæði, brugðust þjóðarsamfélög fljótt við og flokkuðu umdæmin í samræmi við þau þróunarstig trúarinnar sem nefnd voru í skilaboðunum 9. janúar. Þannig var hægt að fá raunhæft yfirlit yfir framtíðarmöguleika samfélagsins en eftir sem áður blasir það verkefni við stofnununum að bæta mælikvarðana sem notaðir eru. Flokkun umdæma felur ekki í sér neitt mat á stöðu þeirra. Það er öllu fremur leið til að meta vaxtarmöguleikana svo að hægt sé að sinna þeim í samræmi við þróunarstig þeirra. Ósveigjanlegir mælikvarðar missa augljóslega marks en nauðsynlegt er að byggja matið á vel skilgreindri áætlun. Tveir mælikvarðar virðast sérlega mikilvægir: Styrkur þess mannauðs sem ræktaður er af þjálfunarstofnuninni með það fyrir augum að útbreiða og treysta trúna í umdæminu og hæfni stofnananna til að virkja mannauðinn á vettvangi þjónustu.
Áherslan hefur nú beinst að því í nær öllum löndum að hraða þróun forgangsumdæma og hefja þau á nýtt vaxtarstig. Það hefur berlega komið í ljós að framfarir að þessu leyti eru að miklu leyti háðar virkni þess samhliða ferlis sem beinist að því að aðstoða aukinn fjölda vina að fara í gegnum aðalnámskeiðaröðina sem þjálfunarstofnunin á svæðinu býður uppá. Aukin virkni um heiminn er til vitnis um að þessi námskeið hafa borið árangur. Þau hafa fyllt vinina þjónustuanda sem nauðsynlegur er til að vinna að hinum ýmsu verkefnum, sem vöxtur umdæmis útheimtir á öllum stigum.
Það er sérlega ánægjulegt að sjá vöxt frumkvæðis og úrræðis í bahá’í heiminum ásamt hugrekki og djörfung. Helgun, eldmóður, fullvissa og þrautseigja eru meðal þeirra eiginleika sem einkenna átrúendurna í sérhverri heimsálfu. Þessir eiginleikar birtast í – en takmarkast engan veginn við – brautryðjendur á heimavettvangi. Það hefur farið eins og við vonuðum, að markmið um opnun nýrra umdæma hafa verið uppfyllt fúslega af áhugasömum þátttakendum í námskeiðum þjálfunarstofnunar, sem hafa til að bera þekkingu og leikni sem þeir öfluðu sér á þjálfunarnámskeiðunum og hefjast handa um að stofna trúna á nýju svæði og renna stoðum undir nýtt samfélag.
Í flestum umdæmum er vöxtur frá einu vaxtarstigi til annars skilgreindur sem fjölgun námshringja og helgistunda og aukning í barnakennslu ásamt útbreiðslunni sem kemur í kjölfarið. Helgistundir byrja að blómgast með aukinni vitund um andlega vídd mannlegrar tilveru meðal átrúenda á svæðinu en sú vitundarvakning verður með tilstyrk þjálfunarnámskeiða. Barnakennsla er líka eðlileg afleiðing þjálfunar sem aflað var á fyrstu stigum námskeiðanna. Þegar þessi starfsemi er opnuð hinu ytra samfélagi með ýmsum hugmyndaríkum og vel skipulögðum aðferðum og leiðum laðar hún að sér vaxandi fjölda leitenda sem oft hafa áhuga á að sækja opin hús og taka þátt í námshringjum. Margir lýsa síðan yfir trú sinni á Bahá’u’lláh og líta frá byrjun á hlutverk sitt í samfélaginu sem virkan þátt í öflugu vaxtarferli. Viðleitni einstaklinga og samfélags á kennsluvettvangi eykst í sama mæli og verður til þess að efla ferlið enn frekar. Rótgróin samfélög öðlast nýtt líf og ný samfélög myndast sem brátt njóta þeirra forréttinda að kjósa sín eigin svæðisráð.
Samhengið sem þannig fæst með stofnun námshringja, helgistunda og barnakennslu örvar vöxtinn í umdæminu og það þeim mun frekar sem þessum grunnþáttaverkefnum fjölgar. Herferðir sem hjálpa allstórum hópi átrúenda að komast nógu langt í aðalnámskeiðaröðinni til að inna af hendi nauðsynlega þjónustu ljáir þessari fjölþættu og vaxandi starfsemi nýtt afl.
Það er augljóst að hin kerfisbundna leið til þjálfunar hefur opnað bahá’íum leið til að ná til hins ytra samfélags, deila boðskap Bahá’u’lláh með vinum, fjölskyldu, nágrönnum og samverkamönnum og kynna þeim ríkidæmi kenninga Hans. Þessi sýn á leiðina til hins ytra samfélags er einn ágætasti ávöxtur þess grasrótarnáms sem fram fer. Það hefur sannast að starfsmynstrið í umdæmum um heim allan er leið til að hraða útbreiðslu og treystingu. Samt er þetta aðeins byrjunin.
Í mörgum heimshlutum hefur það yfirleitt ekki reynst óvinnandi verkefni að fjölga verulega í röðum fylgjenda Bahá’u’lláh. Því er það uppörvandi að sjá að í sumum þróaðri umdæmum er verið að bæta vandlega hönnuðum verkefnum við núverandi vaxtarmynstur með það fyrir augum að ná til móttækilegra hópa og auka útbreiðslu trúarinnar. Slík verkefni hraða kennslunni, sem nú þegar sækir í sig veðrið með viðleitni einstaklinga. Og þar sem fjöldayfirlýsingar koma í kjölfarið eru ráðstafanir gerðar til að tryggja að visst hlutfall nýrra átrúenda taki strax þátt í þjálfunaráætluninni, því eins og við höfum lagt áherslu á nokkrum sinnum verða þessir átrúendur kallaðir til að þjóna þörfum sívaxandi bahá’í samfélags. Þeir hjálpa við að dýpka bahá’ía almennt með því að heimsækja þá reglulega, þeir kenna börnum, skipuleggja helgistundir, mynda námshringi og gera það mögulegt að viðhalda útbreiðslu.
Allt þetta opnar heillandi möguleika fyrir andlegu svæðisráðin. Þeirra hlutverk, í samvinnu við aðstoðarráðgjafana sem ráðleggja þeim og aðstoða þau, er að örva og virkja orku og hæfileika þess mannauðs sem er tiltækur í þeirra lögsagnarumdæmum bæði til að skapa lifandi samfélög og hafa áhrif á ytra samfélagið. Á svæðum þar sem engin andleg svæðisráð eru eða þar sem svæðisráðin virka ekki að neinu gagni, gefur stigvaxandi nálgun til að þróa samfélög og andleg svæðisráð mikil fyrirheit.
Sérstaklega er ánægjulegt að sjá mikla þátttöku átrúendanna á ýmsum sviðum vaxtarferlisins. Í umdæmi eftir umdæmi vex stöðugt fjöldi þeirra sem axla ábyrgð á útbreiðslu og treystingu. Samráðssamkomur sem haldnar eru á umdæmisstigi auka vitund um möguleikana og skapa áhuga. Engar kröfur eru gerðar á þessum samkomum til formlegrar ákvarðanatöku en þar geta þátttakendur íhugað þá reynslu sem þeir hafa fengið, miðlað af skilningi sínum, kannað nálganir og öðlast betri skilning á því hvernig hver og einn geti lagt sitt af mörkum til að ná markmiðum áætlunarinnar. Í mörgum tilfellum leiðir slík samvirkni til samkomulags um skammtímamarkmið einstaklinga og hópa. Að læra í verki er að verða helsta einkenni á þeirri aðferðafræði sem hér er festa rætur.
Enginn skyldi efast um að það sem við erum að verða vitni að er vaxandi þungi í því ferli hópinngöngu mannkyns í málstaðinn, sem Bahá’u’lláh sagði fyrir í töflu sinni til konungs Persíu, sem Meistarinn þráði ákaft og Verndarinn lýsti sem nauðsynlegum aðdraganda að trúskiptum fjöldans. Í framlínu þess ferlis eru þau umdæmi sem eru tiltölulega fá að tölu en samt reiðubúin til að hleypa af stokkunum öflugum vaxtaráætlunum. Umfang þeirrar útbreiðslu sem á að einkenna næsta vaxtarstig þessara umdæma kallar á öfluga viðleitni sem enn á eftir að sýna. Megi sú mikla orka sem helguð er þessu volduga verkefni eflast með krafti guðlegrar aðstoðar.
Verið fullviss um hjartanlegar bænir okkar í hinum helgu grafhýsum að Bahá’u’lláh sjái fyrir blessun og staðfestingu þeirrar viðleitni ykkar að nýta til fulls einstæð tækifæri þessara dýrmætu daga.
[undirritað: Allsherjarhús réttvísinnar]