Allsherjarhús réttvísinnar
Riḍván 2001
Til bahá’ía um allan heim
Ástkæru vinir
Með gleði í hjarta og miklum væntingum horfum við upp á breytta tíma í upphafi þessarar Riḍvánhátíðar þegar nýtt hugarástand er augljóslega ríkjandi á meðal okkar allra. Hvarvetna í heimssamfélagi okkar hefur meðvitund um gildi þróunarferlis, nauðsyn áætlanagerðar og kosti kerfisbundinna aðgerða við að hlúa að vexti og við að þróa þann mannauð sem getur stuðlað að viðvarandi útbreiðslu og öruggri treystingu aukist. Samræmdur skilningur á þessum forsendum framfara verður ekki ofmetinn né getur mikilvægi þess að varðveita þær fyrir tilstilli vel skipulagðrar þjálfunar verið ofætlað. Það er því merkisviðburður fyrir okkur þegar samfélag okkar nær slíku vitundarstigi. Við erum innilega þakklátir Hinni blessuðu fegurð fyrir að gera okkur kleift að bera kennsl á það og fagna því við sjálft upphaf hins hnattræna átaks sem hleypt verður af stokkunum á þessum hátíðardögum sem nú fara í hönd.
Sá viljastyrkur sem þessi vitund leiddi af sér einkenndi ráðstefnu álfuráðgjafanna og meðlima aðstoðarráða þeirra sem komu saman í janúar síðastliðnum í Landinu helga. Svo ljómandi reynsla hlaust af þessum atburði að hún markaði upphaf nýs tímaskeiðs í trúnni, hins fimmta innan mótunaraldar hennar. Það varð ljóst að sá ferski lífskraftur sem birtist í þessari sögulegu samkomu bar vitni um vaxandi gæði starfseminnar í öllu samfélaginu. Viðleitnin á liðnu ári við að standast frumskilyrðin fyrir framþróun í hópinngönguferlinu staðfesti þessa skoðun. Brautin var þannig rudd fyrir Fimm ára áætlunina, fyrsta ögrandi verkefnið sem tekist er á við á fimmta tímaskeiðinu.
Tólf mánaða áætlunin náði tilgangi sínum og jók við meginátak undanfarandi Fjögurra ára áætlunar, en sú áætlun hafði fætt af sér meira en 300 þjálfunarstofnanir. Mikilvægi hennar kom fram í eftirtektarverðum viðbrögðum af hálfu stofnana og einstaklinga við ákalli eftir að meiri gaumur yrði gefinn að andlegu uppeldi barna og þátttöku yngri ungmenna í bahá’í samfélagslífi. Þjálfun kennara til barnakennslu og að fela yngri ungmennum þátttöku í þjálfunarferlinu hefur orðið að reglulegum hluta bahá’í starfsemi í ýmsum löndum. Þrátt fyrir hve stutt hún stóð yfir gegndi Tólf mánaða áætlunin mikilvægu hlutverki umfram þau markmið sem henni voru sérstaklega sett. Áætlunin var virk tenging á milli afar viðburðaríks tímaskeiðs í bahá’í sögu og hinna gríðarlega heillavænlegu möguleika hins nýja skeiðs sem hún hefur búið samfélagið svo vel undir með afrekum sínum. Hún hefur sömuleiðis verið greypt í annála okkar vegna hinna varanlegu áhrifa sem starfsemi trúarinnar hefur haft við lok tuttugustu aldarinnar – aldar sem verðskuldar að vera skoðuð af sérhverjum bahá’ía sem langar að skilja hina róstusömu krafta sem höfðu áhrif á líf plánetunnar og þróunarferla málstaðarins sjálfs á örlagaríkum tíma í félagslegri og andlegri þróun mannkynsins. Sem aðstoð við svo verðuga viðleitni var Century of Light [Öldin bjarta], yfirlit um tuttugustu öldina, gefið út að okkar beiðni og undir okkar umsjón.
Í þessu eins árs verkefni hefur starfsemi tengd ytri samskiptum trúarinnar orðið mjög sýnileg við mörg tækifæri. Íhugið til dæmis áberandi þátttöku fulltrúa bahá’ía í þúsaldarviðburðunum sem áttu sér stað í maí, ágúst og september að tilmælum aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Þýðing svo náinnar og eftirtektarverðrar aðildar Alþjóðlega bahá’í samfélagsins að þróunarferlum hins Minni friðar mun krefjast þess að nokkur tími líði áður en hægt verður að skilja hana til fulls. Meðal annars sem bar hæst var álfuráðstefna á Indlandi sem skipulögð var af Fræðistofnun um hnattræna farsæld, nýrri stofnun sem starfar undir verndarvæng Alþjóðlega bahá’í samfélagsins. Á ráðstefnunni, sem hafði að umræðuefni „vísindi, trúarbrögð og þróun“, voru þátttakendur frá leiðandi ópólitískum samtökum á Indlandi og einnig víðkunnum stofnunum á borð við UNESCO, UNICEF, WHO og Alþjóðabankann. Í október var svo Bahá’í heimsfréttaþjónustunni (BWNS) [Bahá’í World News Service] ýtt úr vör á alnetinu með það að augnamiði að ná til bæði bahá’ía og annarra með fréttafrásögnum um þróun mála um gervallann bahá’í heiminn.
Hin kröftuga starfsemi sem fór fram við Bahá’í heimsmiðstöðina á síðastliðnu ári var að mestu leyti kynnt vinunum í fyrri tilkynningum. Þar var getið þrekvirkja á borð við flutning Alþjóðlegu kennslumiðstöðvarinnar til varanlegs aðseturs síns á Karmelfjalli; ráðstefnu álfuráðgjafa og meðlima aðstoðarráða þeirra sem haldin var í Landinu helga í janúar síðastliðnum; og lok byggingarframkvæmdanna á Karmelfjalli sem nú er verið að leggja síðustu hönd á í undirbúningi fyrir hátíðarhöldin í maí. Í október síðastliðnum var tekið í fyrsta skipti á móti pílagrímum og gestum í nýju móttökumiðstöðinni í Haifa, en hún er nú orðin að fullu starfhæf. Í Bahjí hefur fegrun helgistaðarins haldið stöðugt áfram með þróun garðanna. Nýtt verkefni hefur nú eflt þá viðleitni, en á síðasta ári var hafist handa við að byggja gestamiðstöð við norðurenda landareignarinnar handan við Collins hliðið. Áætlað er að verkinu ljúki á næstu mánuðum. Byggingin er komin á sinn stað og er vinna við alla hluta hennar í fullum gangi, þar með talið við innréttingu og fegrun umhverfis. Hin nýju húsakynni munu gera Heimsmiðstöðinni auðveldara um vik að taka á móti auknum fjölda pílagríma, bahá’í skammtímagesta og sérgesta.
Sem lokaorð þessa ársyfirlits er það okkur mikið fagnaðarefni að segja ykkur frá því að Andlegt þjóðarráð bahá’ía í Indónesíu hefur verið endurstofnað á Landsþinginu í Jakarta á síðustu Riḍvánhátíð eftir að hafa verið óstarfhæft í næstum þrjá áratugi. Bann sem var sett á bahá’í starfsemi í ágúst 1962 hefur reist verulegar skorður við starfsemi bahá’íanna í Indónesíu allan þennan tíma en þeir hafa auðsýnt staðfestu og visku í langvarandi þrengingum sínum uns aðstæður í því landi breyttust sem leiddi til þess að banninu var aflétt. Mættum við þá ekki þora að vona að ámóta gleðifregn varðandi þjakaða trúbræður okkar í Íran, Egyptalandi og öðrum löndum sé ekki of langt undan?
Kæru vinir: Nú, að tveimur áratugum liðnum, mun bahá’í heimurinn halda upp á hundrað ára ártíð upphafs mótunaraldarinnar. Við lítum til baka til dögunar þessa tímabils frá sjónarhóli afreka sem varla var hægt að gera sér í hugarlund að ynnust við upphaf hennar. Fram undan er sjóndeildarhringur sem knýr samfélagið til enn meiri þrekvirkja á þeim stutta tíma sem eftir er uns sú ártíð gengur í garð. Það er hægt að klífa þessar hæðir og það verðum við að gera. Fimm ára áætluninni, sem við biðjum vinina um allan heim að beina viðvarandi og brýnni athygli sinni að, er ætlað að mæta þessari áskorun. Hún er fyrst í röð herferða sem verða farnar á þessum tuttugu árum. Þessi áætlun er næsta stig að því takmarki að ná fram umtalsverðum framförum í hópinngönguferlinu. Hún útheimtir að þessu lífsnauðsynlega ferli sé hraðað og krefst samfelldni í kerfisbundinni viðleitni af hálfu hinna þriggja þátttakenda í áætluninni: Einstaklinga, stofnana og samfélags.
Ekki er þörf á að gera ítarlega grein fyrir kröfum áætlunarinnar því þær voru settar fram í skilaboðum okkar til saman kominna álfuráðgjafa í Landinu helga sem var síðan deilt með öllum andlegum þjóðarráðum. Fljótlega eftir ráðstefnuna hófu álfuráðgjafarnir samráð við þjóðarráðin um framkvæmd áætlunarinnar innan lögsögu þeirra. Stefna áætlunarinnar er því vinunum hvarvetna kunn þar sem undirbúningur fyrir vinnu að meginmarkmiði hennar er hafinn á umdæmis- og svæðisstiginu. Almenn meðvitund er nú ríkjandi um að átak verður gert til að trúin hefji innreið sína inn á fleiri og fleiri landssvæði innan landa. Svo dæmi sé tekið verða svæðissamfélög sem eru í mikilli nálægð hvert við annað og þar sem kringumstæður leyfa látin taka þátt í kröftugum vaxtaráætlunum. Önnur nálgun mun kalla á kerfisbundna opnun nýrra svæða þangað sem senda verður innanlandsbrautryðjendur í sama anda helgunar og knúði þá sem dreifðu sér til annarra landa á fyrri tímum yfir meginlönd og höf til að opna ósnortin svæði. Í stuttu máli sagt mun það þróunarferli sem veitir þessu guðlega knúna framtaki innblástur verða útvíkkað um leið og tengd atriði verða smám saman kynnt til sögunnar og samþætt starfsemi þess með kerfisbundnum hætti.
Það sem mun einkenna fimmta tímaskeiðið er auðgun tilbeiðslulífs samfélagsins með því að reisa þjóðleg tilbeiðsluhús eftir því sem aðstæður í þjóðarsamfélögum leyfa. Tímasetningar þessara framkvæmda munu verða ákvarðaðar af Allsherjarhúsi réttvísinnar í samræmi við framgang hópinngönguferlisins í löndunum. Þessi þróun mun koma í ljós eftir því sem líður á röð þróunarstiga hinnar guðlegu áætlunar ‘Abdu’l‑Bahá. Þegar byggingu móðurmusteris Vesturlanda hafði verið lokið hóf Verndarinn að gera áætlun um byggingu mustera fyrir hverja heimsálfu. Fyrst meðal þeirra voru Mashriqu’l-Adhkár í Kampala, Sydney og Frankfurt sem voru byggð í tengslum við markmið tíu ára áætlunarinnar. Allsherjarhús réttvísinnar hélt áfram á þessari braut með byggingu musteranna í Panamaborg, Apia og Nýju-Delí. En þessu meginlandsstigi er enn ólokið: Enn eina byggingu á eftir að reisa. Það er með djúpu þakklæti og gleði sem við kunngerum á þessari heillastundu þá ákvörðun að hefjast skuli handa við þetta síðasta verkefni. Í Fimm ára áætluninni mun bygging móðurmusteris Suður-Ameríku, í Santiago í Chile, hefjast og uppfylla þannig ósk sem Shoghi Effendi tjáði skýrt.
Á sama tíma er viðeigandi að taka frekari skref við Heimsmiðstöðina við að þróa áfram starfssvið þeirra stofnana sem nú eiga sér aðsetur í hinum nýju byggingum á boganum. Þar sem Alþjóðlega kennslumiðstöðin hefur tekið miklum framförum í starfsemi sinni verður sérstök áhersla lögð á að skipuleggja starfið í Textarannsóknamiðstöðinni. Sérstakur gaumur verður gefinn að því að auðga þýðingar úr hinum helgu ritum á ensku. Tilgangur stofnunarinnar er að aðstoða Allsherjarhús réttvísinnar við að leita leiðsagnar hinna helgu rita og að þýða áreiðanleg rit trúarinnar og semja skýringar við þau. Í Landinu helga mun enn fremur verða áfram leitast við að gera ráðstafanir til að hægt verði að auka enn frekar fjölda pílagríma og gesta sem koma til Bahá’í heimsmiðstöðvarinnar.
Í Riḍvánboðum okkar fyrir fimm árum kunngerðum við að fram mundi fara mikils háttar athöfn við Heimsmiðstöðina í tilefni af lokum byggingarframkvæmdanna á Karmelfjalli og opnun stallanna við Grafhýsi Bábsins fyrir almenningi. Sú stund er á næsta leiti og við fögnum í eftirvæntingu okkar við að bjóða velkomna vini frá nánast öllum löndum til þátttöku í dagskrá sem mun standa yfir í fimm daga, frá 21.-25. maí. Enn fremur er það okkur gleðiefni að geta þess að verið er að gera ráðstafanir til að tengja bahá’í heiminn við atburðarásina með beinni útsendingu á veraldarvefnum og í gegnum gervihnött og eru upplýsingar þar að lútandi væntanlegar. Á meðan Heimsmiðstöðin helgar sig undirbúningnum er farið að gæta eftirvæntingar meðal almennings í Haifa og hafa yfirvöld þar í borg tekist á hendur við útgáfu bókar í tilefni þessa viðburðar er ber titilinn Bahá’í Shrine and Gardens on Mount Carmel, Haifa, Israel: A Visual Journey [Bahá’í grafhýsi og garðar á Karmelfjalli í Haifa, Ísrael: Sjónrænt ferðalag]. Enn fremur eru póstyfirvöld í Ísrael að fylgja eftir ákvörðun sinni um að gefa um leið út frímerki með mynd af stöllunum af þessu tilefni. Viðburðurinn er einkum þýðingarmikill vegna þess að hann mun verða tækifæri til þess að staldra við og líta hversu merkilega langt málstaðurinn hefur náð í þróun sinni á tuttugustu öldinni. Þetta verður einnig tími til að íhuga vísbendingarnar til framtíðarinnar sem felast í þýðingu hinna einstæðu afreka sem bygging hinna mikilvægu mannvirkja á hinu helga fjalli Guðs eru tákn um – bygging sem opnar hinar andlegu og stjórnarfarslegu miðstöðvar trúar okkar fyrir sjónum heimsins.
Um leið og samfélag okkar fyllist fögnuði yfir þessari spennandi tilhugsun, skyldi sérhver einstaklingur hafa hugfast að enginn tími er til að láta sér nægja unnin afrek. Núverandi hörmungarástand mannkynsins er of vonlaust til að leyfa sér að hika jafnvel eitt einasta augnablik við að útdeila brauði lífsins sem hefur komið af himnum ofan á okkar tímum. Lát því ekki verða neina töf á því að flýta þróunarferlinu sem gefur öll fyrirheit um árangur við að vísa sálum allra þeirra sem hungrar eftir sannleikanum til gnægtaborðs Drottins herskaranna. Megi hann, sem stendur vörð um örlög síns guðlega kerfis, leiðbeina og vísa ykkur veginn og staðfesta sérhverja viðleitni sem þið auðsýnið við að takast á við hin aðkallandi verkefni sem fram undan eru.
[undirritað: Allsherjarhús réttvísinnar]