Allsherjarhús réttvísinnar
28. desember 1999
Til bahá’ía um allan heim
Ástkæru vinir
Í fjögurra ára áætluninni höfum við verið að yfirfara þau lög í Kitáb-i-Aqdas sem ekki eru enn í gildi um allan heim í þeim tilgangi að ákveða hverjum þeirra væri rétt að koma í framkvæmd nú.
Í öllum löndum höfum við orðið varir við vaxandi þorsta eftir andlegu lífi og skýru siðferði. Gagnsleysi verkefna og áætlana um mannlegar umbætur, sem ekki eiga rætur sínar í andlega meðvituðu lífi og siðrænni dyggð, hefur verið viðurkennt. Hverjir skyldu vera betur í stakk búnir til að fullnægja þessari löngun en þeir sem nú þegar hafa hlotið innblástur af kenningum Bahá’u’lláh og eru staðfestir með mætti Hans?
Við höfum þar af leiðandi ákveðið að það sé bráðnauðsynlegt fyrir alla átrúendur að auka meðvitund sína um þær blessanir sem þau lög veita er beinlínis rækta upp tilbeiðslulíf hjá einstaklingnum og þar með hjá samfélaginu. Meginatriði þessara laga eru öllum bahá’íum kunn en til að öðlast betri innsýn í merkingu þeirra hlýtur að vera nauðsynlegt að uppfylla alla guðlega opinberaða þætti þeirra. Hér er um að ræða þau lög er tengjast skyldubæn, föstu og að hafa yfir Hið mesta nafn níutíu og fimm sinnum á dag.
Bahá’u’lláh fullyrðir: „Sá sem hvorki gerir gott né sinnir tilbeiðslu er líkur tré sem engan ávöxt ber og athöfn sem ekki skilur eftir sig nein ummerki. Hver sá er upplifir heilagan fögnuð tilbeiðslunnar mun neita að láta slíka athöfn eða nokkra lofgjörð til Guðs í skiptum fyrir allt sem til er í heiminum. Fasta og skyldubæn eru lífi mannsins sem tveir vængir. Blessaður er sá sem svífur með hjálp þeirra í himnaríki ástar Guðs, Drottins allra veralda.“
Vinunum hefur lengi verið vel kunnugt um hið mikla vægi sem Bahá’u’lláh tengir við daglegar skyldubænir og því að halda föstuna, en ýmsar hliðar laganna, svo sem þær er snúa að laugun, ferðalögum og uppbót vegna slepptra bæna, átti eftir að lögfesta um allan heim. Þetta skref er nú tekið. Þannig eru nú lögfestir, undantekningalaust, allir þættir laganna um skyldubæn og föstu.
Jafnframt höfum við ákvarðað að nú sé rétti tíminn fyrir bahá’ía í öllum löndum að taka til íhugunar orð Kitáb-i-Aqdas: „Mælt er svo fyrir að hver sem trúir á Guð, Drottinn dómsins, skuli dag hvern eftir að hafa laugað hendur sínar og síðan andlit, setjast, snúa sér til Guðs og endurtaka ‚Alláh-u-Abhá‘ níutíu og fimm sinnum. Þetta var ákvörðun skapara himnanna þegar Hann með mætti og tign settist í hásæti nafna sinna.“ Lát alla njóta hins andlega auðs sem sálum þeirra hlotnast vegna þessarar einföldu tilbeiðslu- og íhugunargjörðar.
Sá andlegi vöxtur sem tilbeiðsla einstaklinga leiðir til er enn fremur styrkt af ástríkri samveru vinanna á hverju svæði, af tilbeiðslu samfélagsins í heild og af þjónustu við trúna og við meðbræður okkar. Þessar samfélagslegu hliðar guðlegs lífernis tengjast lögunum um Mashriqu’l-Adhkár sem eru birt í Kitáb-i-Aqdas. Enda þótt tími sé ekki kominn til að reisa svæðisbundin Mashriqu’l-Adhkár, þá eru reglulegar tilbeiðslusamkomur, sem opnar eru öllum, auk þátttöku bahá’í samfélaganna í áætlunum um þjónustu í þágu mannúðar tjáning á þessum þætti bahá’í lífernis og áframhaldandi skref í að koma á lögum Guðs.
Bahá’u’lláh hefur ritað: „Vér höfum prýtt himin tjáningar stjörnum guðlegs vísdóms og helgra tilskipana sem náðargjöf frá Vorri hendi. Sannarlega erum Vér sá er ætíð fyrirgefur, hinn gjafmildasti. Ó vinir Guðs á öllum svæðum! Berið kennsl á gildi þessara daga og haldið fast við hvaðeina sem hefur verið sent niður af Guði, hinum almesta, hinum upphafnasta. Sannarlega minnist Hann ykkar í Hinu almesta fangelsi og fræðir ykkur um það sem færir ykkur nær þeirri stöðu sem gleður augu hinna hreinhjörtuðu. Dýrð hvíli yfir yður og yfir þeim sem hafa náð til þessarar lifandi uppsprettu sem flæðir fram af undursamlegum penna Mínum.“
Það er bæn okkar við hina helgu fótskör að meiri áhersla á andlegum kjarna kenninganna, sem þessi lög tjá, muni efla helgun vinanna gagnvart uppsprettu allra náðargjafa og laða að málstaðnum móttækilegar sálir meðal andlega sveltra barna Hans.
[undirritað: Allsherjarhús réttvísinnar]