Allsherjarhús réttvísinnar
Riḍván 152
Til bahá’ía um allan heim
Ástkæru vinir
Á þessari árstíð allra árstíða heilsum við ykkur af miklum fögnuði vegna aukinnar starfsemi í öllu bahá’í samfélaginu á nýliðnu ári og með ákafri eftirvæntingu vegna þess sem verður og getur komist í framkvæmd á síðasta þriðjungi þriggja ára áætlunarinnar. Við finnum bæði til kvíða og vonar er við sjáum örvæntingu þjóða og þjóðarleiðtoga, þegar þeir leita lausna á knýjandi félagslegum vandamálum. Raunar jafngildir slík örvænting alheimslegu ákalli eftir kenningum Bahá’u’lláh. Þetta er vissulega áskorun og fyrirheit sem engin bahá’í stofnun né einstaklingur getur látið fram hjá sér fara.
Enginn atburður hefur sýnt jafnskýrt fram á þessa dapurlegu framtíðarsýn og Alheimsráðstefnan um félagslega þróun, hin síðasta í röð alþjóðlegra samfunda þjóðarleiðtoganna, sem boðað var til af Sameinuðu þjóðunum. En hversu lítil áhrif sem slíkir atburðir virðast í fljótu bragði hafa á stefnu stjórnvalda, hvort sem meirihluti íbúa heimsins leiðir þá hjá sér eða þekkir ekki til þeirra, er hverjum bahá’ía ljóst að þessi fundaröð er skref í átt til endanlegrar uppfyllingar á þeim vilja Bahá’u’lláh að leiðtogar heimsins hittist, samráðgist og taki ákvörðun um brýn málefni sem ógna heimsbyggðinni í vaxandi mæli.
Þessi þýðingarmikli atburður í Kaupmannahöfn gaf bahá’íum kjörið tækifæri. Um 250 vinir frá meira en 40 löndum sýndu þátttakendum ráðstefnunnar og ráðstefnu óháðra félagasamtaka, sem haldin var um leið, svo ekki varð um villst fram á lausnirnar sem Hinn guðlegi læknir færir. Þetta átak hélt áfram eftir að ráðstefnunni lauk og er jafnvel enn í gangi víðs vegar í heiminum. Við fögnum í einlægu þakklæti til þeirra bahá’í stofnana, nefnda og einstaklinga sem unnu að þessu stórvirki fyrir ráðstefnuna, meðan á henni stóð og eftir hana. Þetta starf sýndi örugglega fram á frekari þróun heimssamfélags okkar og aukin áhrif þess á það ferli, sem leiðir til hins minni friðar og einnig hvernig tækifærin aukast til að koma á framfæri líknandi boðskap Bahá’u’lláh. Samhliða fjölgun slíkra viðburða á heimsvettvangi og auknum þrótti bahá’í samfélagsins í framkvæmd markmiða sinna, sjáum við greinilega hvernig þessi hliðstæðu ferli nálgast hvort annað. Um þetta sagði Shoghi Effendi fyrir nokkrum áratugum síðan: Annað leiðir til pólitískrar einingar þjóðanna, hitt til endanlegrar einingar hjartnanna í einni sameiginlegri trú.
Við byggjum þetta álit á þeirri gleðilegu þróun sem átt hefur sér stað í bahá’í samfélaginu á öðru ári þriggja ára áætlunarinnar. Þótt stór skref hafi verið stigin varðandi ytri samskipti, bæði á svæðis- og þjóðlegum vettvangi, vekja viðbrögð átrúenda við ákalli um kennslu jafnvel enn þá meiri eftirvæntingu. Alls staðar sjást þess merki að gæði starfsins hafa aukist. Dýpri skilningur á þessari óumflýjanlegu skyldu einstaklingsins sést á þeirri aukningu sem orðið hefur í kennslustarfi. Þessi uppörvandi staða mála er afleiðing nokkurra hvetjandi þátta sem allir benda til þess straums nýrra átrúenda, sem við erum svo lengi búin að bíða eftir. Meðal þessara áhrifaþátta eru sú athygli sem samantektin um hópinngöngu hefur vakið eftir því sem hún kemur fram á fleiri tungumálum, áhrifin af aðgerðum alþjóðlegra ráðgjafa og álfuráðgjafa um allan heim, þróunin sem orðið hefur á hlutverki aðstoðarráðgjafa og aðstoðarmanna þeirra, sú aukna áhersla sem lögð er á menntun barna og kraftur ungmenna sem ýta úr vör kennsluverkefnum og taka þátt í víðtæku bahá’í starfi.
Það sem enn eykur gildi þessarar jákvæðu myndar er aukinn styrkur andlegra ráða sem nú verða að takast á við margvísleg verkefni meðan þau reyna að beina sjónum sínum fyrst og fremst að þörfum kennslustarfsins. Við minnum sérstaklega á þann vanda sem liggur á herðum andlegra þjóðarráða þegar samfélögin á umráðasvæðum þeirra verða margbreytilegri og kröfurnar um leiðbeiningu og aðstoð þessara stofnana flóknari.
Samanlögð áhrif í þróun hinna ýmsu sviða sem samfélagið hefur náð, gefa til kynna að mikið starf er helgað hinni þríþættu áætlun. Þess vegna verður að efla trúarkraft einstakra átrúenda, auka til muna mannauð málstaðarins og efla viðeigandi starfsemi svæðis- og þjóðarstofnana. En þar sem enn er mikið starf óunnið á þessu sviði, verða einstaklingar og stofnanir að bregðast við í enn ríkari mæli, ef samfélag okkar á að geta tekist á við tortímandi, skefjalausa hrörnun siðgæðis og koma með óvígan her helgaðra sálna til að mæta þörfum bæði kennslustarfsins og stjórnarfarshliðar trúarinnar og til að gera stjórnstofnanir okkar hæfar til að takast á við verkefnið sem blasa mun við þegar fjöldi átrúenda margfaldast.
Þau skilyrði sem sérstaklega er beint til einstakra átrúenda og andlegra svæðisráða, eru grundvöllur raunhæfra aðgerða varðandi þau verkefni sem blasa við samfélaginu: Annars vegar er um að ræða einstaklingsframtakið, sem hver einstaklingur er skyldugur að axla í kennslu trúarinnar og í öflun dýpri skilnings á tilgangi og þörfum hennar. Nauðsynlegt er að einstaklingar taki þátt í samvinnuverkefnum eins og samfélagsstarfi og áætlunum, samhliða einstaklingsframtaki. Hins vegar er það hlutverk andlega svæðisráðsins að fagna, örva og styðja framtak einstaklinga á hvern þann hátt sem mögulegt er; það er einnig ábyrgðarsvið ráðsins að upphugsa eða þróa áætlanir sem nýta hæfileika og færni einstakra meðlima samfélagsins. Þetta mun tengja einstaklingana við samvinnuverkefni svo sem kennslu og þróunarverkefni, námskeið og aðra hópvinnu. Ef lögð er rækt við að uppfylla þessi óaðskiljanlegu skilyrði, mun samfélagið stækka og styrkjast og ala með sér hugarfar samvinnu.
Á síðasta ári varð greinileg aukning á heimsóknum háttsettra opinberra embættismanna, fyrirmanna og fjölmiðlafólks til heimsmiðstöðvarinnar sem sýnir vaxandi mikilvægi hinnar andlegu og stjórnarfarslegu miðstöðvar trúarinnar í augum umheimsins. Þetta virtist undirstrika framvindu í átt að frekari kunnugleika ríkisstjórna þjóðanna á hinni vaxandi miðstöð alheimstrúar. Ef þessi framvinda er skoðuð af fjalli Guðs, svæði núverandi byggingarframkvæmda, og hún athuguð í ljósi þeirrar þróunar sem á sér stað í svæðis- og þjóðarsamfélögum bahá’ía, kunnum við betur að meta raunverulega opinberun þeirrar sýnar sem Shoghi Effendi sagði frá þegar hann útskýrði afleiðingar þess er byggingarnar sem hýsa myndu alheimslegt stjórnarsetur trúar Bahá’u’lláh, myndu rísa. „Þetta mikla og ómótstæðilega ferli,“ sagði hann „mun haldast í hendur við tvenn jafnmikilvæg þróunarferli – stofnun hins minni friðar og þróun þjóðlegra og svæðisbundinna bahá’í stofnana.“ Þetta er sýn sem með hliðsjón af ástandi heimsins knýr á að framkvæmdum á Karmelfjalli sé lokið á réttum tíma.
Framkvæmdirnar ganga með undraverðum hraða til mikillar furðu fyrir pílagríma, ferðamenn og íbúa á svæðinu vegna umfangs þeirra og mikilleika sem alltaf kemur betur í ljós. Uppbyggingin á sér stað á öllum sviðum í einu. Vinna við sjö stalla fyrir neðan grafhýsi Bábsins og fimm stalla fyrir ofan það er í fullum gangi. Fleiri verktakasamningar voru undirritaðir á þessu ári en nokkurn tíma fyrr. Þar á meðal var nýlega gerður samningur við ítalskt fyrirtæki sem mun sjá um að útvega marmara fyrir byggingarnar á Boganum. Það er augljóst að framkvæmdirnar eru komnar á það stig að ekkert má út af bera. Þess vegna er brýnt að framlög haldist í hendur við framkvæmdahraðann svo að takmarki þriggja ára áætlunarinnar verði náð. En af sjötíu og fjögurra milljón dala markmiði áætlunarinnar, vantar nú fjörutíu milljónir sem þarf að vera búið að safna fyrir Riḍván 1996.
Nýja árið byrjar byrlega með því að nú á Riḍván verða mynduð fimm ný andleg þjóðarráð. Fulltrúar okkar á fyrstu landsþingum þessara svæða verða: Hönd málstaðar Guðs, Amatu’l‑Bahá Rúḥíyyih Khánum í Armeníu og Georgíu, Hönd málstaðar Guðs, ‘Alí-Muḥammad Varqá, í Hvíta-Rússlandi og Sikiley og Hushang Ahdieh ráðgjafi, í Eritreu. Enn fremur munu samfélögin í Bofuþatswana, Siskei, Suður-Afríku og Transkei færast undir lögsögu Andlega þjóðarráðsins í Suður-Afríku, en það endurspeglar þá pólitísku sameiningu sem þar hefur átt sér stað. Breytingin sem þetta felur í sér er sú að fjöldi þjóðarráða í heiminum fer úr 172 í 174.
Elskuðu samverkamenn: Ástand mannkyns er áskorun til okkar um að stórefla starfsemi okkar langt umfram markmið. Ský örvæntingar sem grúfir yfir örlögum vitfirrts mannkyns, er einmitt fyrirboði vorregnsins sem getur slökkt andlegan og efnislegan þorsta hverrar þjóðar. Það eina sem þarf er frjóvgun stöðugrar, trúverðugrar kennslu. Þótt stuðningur bahá’í stofnana við kennsluverkefnin sé nauðsynlegur, hvílir framkvæmd þeirra fyrst og síðast á bahá’í einstaklingum.
Látið ekki óhóflega sjálfsgagnrýni né tilfinningu um ófullkomleika, vangetu eða reynsluleysi hindra ykkur eða hræða. Vinnið bug á ótta ykkar í trausti til Bahá’u’lláh. Hefur Hann ekki fullvissað okkur um að ‚herskarar guðlegrar uppljómunar‘ muni koma til liðs hverjum þeim sem nefnir nafn Hans og að hann verði umkringdur „herskörunum á hæðum sem hver og einn muni halda á lofti kaleik sannrar birtu“? Stígið því fram á sviðið þar sem allir ástvinir Hans eru jafnir, standa frammi fyrir sama verkefni og njóta ómældrar blessunar. Bahá’u’lláh staðfestir sjálfur að kennslan sé ‚verðugust allra gerða‘. Á þessu einstaka tímabili í sögu jarðar er alls ekkert jafn ósegjanlega mikilvægt og það að bjóða alls konar fólki, með margvíslega hæfileika, að veisluborði Drottins herskaranna.
Er við sendum ykkur þessi skilaboð, stendur skýr fyrir sjónum okkar sýnin um ótalda sigra sem bíða þess að verða unnir. Við erum þess fullvissir að þið getið framkvæmt ótalmarga þeirra á þeim tíma sem eftir er af þriggja ára áætluninni. Allt kapp verður að leggja á að ná þeim árangri að sviðið sé tilbúið fyrir næsta átak, alheimslegt verkefni sem verður hleypt af stokkunum á Riḍván 1996. Þá verður sett af stað alheimsleg herferð sem mun tryggja verðugt hámark afreka þeirrar aldar sem enginn annar en ‘Abdu’l‑Bahá sjálfur leit á sem tímabil sem myndi ,,skilja eftir ummerki sem endast munu um eilífð.“
[undirritað: Allsherjarhús réttvísinnar]