Riḍván 2007 – Til bahá’ía um allan heim
Efnisgrein 1
Efnisgrein 2
Efnisgrein 3
Efnisgrein 4
Efnisgrein 5
Efnisgrein 6
Afritaðu eða deildu hlekk
Afritaðu eða deildu texta með tilvísun
/t/
/t/
Fyrsta ár fimm ára áætlunarinnar er hrífandi vitnisburður um þann anda helgunar sem leitt hefur til þess að fylgjendur Bahá’u’lláh hafa tekið opnum örmum þeim aðgerðaramma sem settur var fram í skilaboðum okkar frá 27. desember 2005 og staðfestu þeirra við að örva hópinngönguferlið. Í umdæmum þar sem þessum ramma hefur verið beitt í fullu samhengi allra þátta eru stöðugar framfarir, bæði með tilliti til þátttöku átrúendanna og vina þeirra í samfélagslífi og fjölgunar átrúenda þannig að sum umdæmi tilkynna fjölgun svo hundruðum skiptir á nokkurra mánaða fresti og önnur svo tugum skiptir. Það sem hefur ráðið úrslitum um þessa þróun er aukin vitund um andlegt eðli þess sem við erum að gera samfara auknum skilningi á þeim tækjum til ákvarðanatöku sem markast af megineinkennum áætlunarinnar.
Áður en við settum af stað yfirstandandi röð heimsáætlana með það eina markmið að örva hópinngönguferlið hafði bahá’í samfélagið gengið í gegnum öran og umfangsmikinn vöxt víða um heim – vöxt sem ekki reyndist unnt að viðhalda. Vandinn reyndist ekki sá að fjölga nýjum fylgismönnum í röðum málstaðarins, í það minnsta ekki meðal þjóðfélagshópa sem reynst hafa móttækilegir, heldur sá að samþætta þá inn í samfélagslífið og að finna meðal þeirra nægjanlega marga sem vildu helga sig frekari útbreiðslu. Það var þvílíkt grundvallaratriði að bahá’í heimurinn tæki þessa áskorun föstum tökum að við gerðum hana að aðalatriði fjögurra ára áætlunarinnar og hvöttum andleg þjóðarráð til þess að beina bróðurparti krafta sinna að því að byggja upp getu stofnana á þessu sviði, með því að koma upp þjálfunarstofnunum í því augnamiði að efla mannauðinn. Við bentum á að stöðugt vaxandi hópur átrúenda þyrfti að njóta góðs af formlegri þjálfunarstarfsemi sem þróuð hefði verið til að miðla þeirri þekkingu og andlega innsæi, þeirri getu og hæfni, sem þarf til þess að inna af hendi þá þjónustu sem staðið gæti undir víðtækri útbreiðslu og treystingu.
Þegar við í dag virðum fyrir okkur vinnuaðferðir þeirra umdæma sem komist hafa á þróttmikið vaxtarstig er ljóst að í öllum þeirra hafa vinirnir haldið áfram að efla þjálfunarferlið samfara því að læra að leysa úr læðingi ört vaxandi kjarna virkra fylgjenda trúarinnar, að koma á skilvirkri samhæfingu viðleitni þeirra, að samþætta einstaklingsfrumkvæði og sameiginlegt framtak í árangursríkt mynstur samstilltra aðgerða, og að byggja undirbúning á starfsbylgjum á greiningu á viðeigandi upplýsingum. Það er hægt að sýna fram á að þau hafa fundið lykilinn að sjálfbærum vexti, hvað til þarf svo að útbreiðsla og treysting fari hönd í hönd. Slíkur vitnisburður mun vissulega verða hverjum helguðum átrúanda hvatning til þess að feta áfram einbeittur þá stigu kerfisbundins lærdóms sem mörkuð hefur verið.
Afrakstur þessa gríðarlega átaks undanfarinna ára hefur ekki einskorðast við þau umdæmi þar sem nýju lífi hefur á þennan hátt verið hleypt í umfangsmikið útbreiðslu- og treystingarstarf. Sú leið sem farin var í fjögurra ára áætluninni og síðan í tólf mánaða áætluninni og fyrri fimm ára áætluninni reyndist gegna lykilhlutverki í því að skapa aðstæður til þess að viðleitni átrúendanna næði til breiðari hóps fólks, og fá það með í ýmsa þætti samfélagslífsins. Áhrif þeirrar uppbyggingar sem staðið hefur yfir í áratug á hæfni hinna þriggja þátttakenda hnattrænu áætlunarinnar er nú víða að koma í ljós. Hvarvetna var nauðsynlegt að efla skilning á því hvaða öfl knýja eflingu mannauðsins. Hvarvetna þurftu vinirnir að læra að skilja forsendur varanlegs vaxtar – að örva kerfisbundið starf og að forðast að láta afvegaleiða sig, að færa tiltekna þætti ákvarðanatöku til grasrótarinnar og að skapa samfélög sem vita hvert þau stefna, að hvetja til almennrar þátttöku og að koma til móts við mismunandi þjóðfélagshópa í starfseminni, einkum börn og unglinga, framtíðarmálsvara málstaðar Guðs, smiði siðmenningar Hans.
Með svo styrka undirstöðu til staðar ætti fyrsta hugsun hvers og eins átrúanda að beinast að kennslu. Hvort sem þeir sem einstaklingar kenna vinum sínum með því að bjóða þeim á opin hús og í kjölfarið að taka þátt í grunnþáttunum eða nota grunnþættina sem megin kennslutæki; hvort sem þeir sem samfélagsheild setja starf með börnum og unglingum á oddinn í upphafi eða beina athyglinni fyrst að eldri kynslóðinni; hvort sem sameiginlegt framtak þeirra í átakslotum felst í því að fara saman í heimsóknir til fjölskyldna eða líta reglulega við á heimilum leitenda yfir lengri tíma – eru þetta ákvarðanir sem einungis verða teknar út frá aðstæðum og möguleikum vinanna og út frá eðli þeirra þjóðfélagshópa sem þeir eiga samskipti við. Það sem allir verða að gera sér ljóst, óháð ytri aðstæðum, er annars vegar hrópandi þörf mannkyns sem, svipt andlegri næringu, sekkur dýpra í örvæntingu og hins vegar hversu knýjandi ábyrgðin að kenna er, ábyrgð sem hverju og einu okkar hefur verið falin sem meðlimum samfélags Hins æðsta nafns.
Bahá’u’lláh hefur fyrirskipað fylgjendum sínum að kenna málstaðinn. Nú þegar eru fleiri þúsundir farnar að beita ákvæðum áætlunarinnar af krafti í þeim tilgangi að leiðbeina sálum að úthafi opinberunar Hans. Við horfum fullir eftirvæntingar til þess dags þegar kennsla verður ríkjandi ástríða í lífi sérhvers átrúanda og eining samfélagsins svo öflug að þetta ástand upptendrunar fær útrás í óstöðvandi framtaki á vettvangi þjónustu. Þetta er því einlæg ósk okkar ykkur til handa og bænarefni heitustu bæna okkar við hina helgu fótskör.